Færslur: 2012 Febrúar
29.02.2012 01:32
Sydney-Perth-Singapore-Kuala Lumpur-London-Keflavík
Já, þá er ég komin heim eftir langt ferðalag tilbaka. Eftir einn góðann dag í Sydney var það 5 tíma flug til Perth, bið þar í ca 12 tíma, 5 1/2 tíma flug til Singapore, 12 tímar þar, og svo klukkutíma flug til Kuala Lumpur. Þá var kominn tími á hvíld og sturtu. Eyddi 2 dögum í KL, fór á aðalmarkaðinn, hop on hop off rútuna og sá helstu staðina og kíkti í china town. Og svaf auðvitað. Lenti reyndar í skemmtilegu atviki þegar ég kom að kvöldi, þreytt eftir langt ferðalag. Leigubílstjórinn vissi nefnilega ekkert hvar hostelið var þrátt fyrir að ég hefði heimilisfang og leiðbeiningar frá hostelinu. Auk þess var enskukunnátta hans mjög takmörkuð. Hann hringdi til að fá leiðbeiningar og reyndi að fá mig til að vera eftir á stað sem hostelið átti að vera á, en var ekki sjáanlegt. Svo rauk hann af stað gangandi, og skildi mig eftir og bílinn opinn, í gangi, til að finna hostelið! En á endanum fannst hostelið og var mjög fínt. Rétt hjá aðalmarkaðnum og china town. En eftir 2 daga var það skemmtilegasti parturinn, 14 tíma flug til London :/ Þvílíkur léttir að stíga út úr vélinni. Ég íhugaðu reyndar alvarlega að stökkva upp í vélina til Christchurch á Nýja Sjálandi sem var að fara á svipuðum tíma frá KL ;) Hefði svo viljað vera lengur á Nýja Sjálandi. Landið er svo passlega stórt, svooo fallegt og með stórbrotna og fjölbreytta náttúru og svo vinalegt fólk. Þar er ekki of heitt og ekki of kalt og bara gott að vera.
En ég hélt minni leið áfram og svo var það ein nótt í London. Hitti þar vinkonu mína sem ég kynntist í Perú fyrir 5 1/2 ári, og það var æðislegt :) Svo var það flug til Keflavíkur, rútan til Reykjavíkur, flug norður og svo keyrt á Dalvík.
Verð að viðurkenna að það var mjög gott að sofa í sínu rúmi enda svaf ég í 12 tíma fyrstu nóttina! Svo var gaman að hitta grísina hennar Helgu systir og restina af familíunni líka auðvitað. En þá er bara að fara huga að næstu ferð ;)
Þangað til næst :)
En ég hélt minni leið áfram og svo var það ein nótt í London. Hitti þar vinkonu mína sem ég kynntist í Perú fyrir 5 1/2 ári, og það var æðislegt :) Svo var það flug til Keflavíkur, rútan til Reykjavíkur, flug norður og svo keyrt á Dalvík.
Verð að viðurkenna að það var mjög gott að sofa í sínu rúmi enda svaf ég í 12 tíma fyrstu nóttina! Svo var gaman að hitta grísina hennar Helgu systir og restina af familíunni líka auðvitað. En þá er bara að fara huga að næstu ferð ;)
Þangað til næst :)
Skrifað af Ingibjörgu
21.02.2012 20:00
Paihia & Bay of Islands
Átti mjög góða nokkra daga í Auckland. Labbaði á Ednu, sem er óvirkt eldfjall, en þar er geðveikt útsýni yfir borgina og maður getur horft ofan í gíginn. Ég fór líka í hálfgerðan dýragarð sem er tileinkaður Suðurskautinu, og
sá tvær tegundir af mörgæsum í viðbót, gentoo og king, en þar er svæði sem hefur verið gert sem líkast Suðurskautinu, fyrir mörgæsirnar, en gestir fá að fara í gegnum svæðið á járnbrautarteinum í svona snjóbíl (því það er kalt þarna fyrir mörgæsirnar). Maður fer í svona hring um svæðið og það tekur um 8 mínútur. Ég fór þrisvar! Og hefði alveg getað farið oftar, elska að fylgjast með þeim :) Ég fór svo aftur í bíó, á Ástralska mynd, sem var mjög fyndin, og borðaði meira sushi því ég fann geggjaðan sushi stað og er búin að borða þar þrisvar á fjórum dögum!
Ég eyddi svo tveim dögum í Paihia, eða Bay of Islands. Fór beint í siglingu þegar ég kom, þar sem meðal annals var siglt gegnum "hole in a rock" og við sáum höfrunga! :) Fór svo í dagsferð upp til Cape Reinga, sem er (næstum því) nyrsti partur NZ. Á leiðinni var keyrt eftir 90 mílna ströndinni, og þá meina ég keyrt Á ströndinni alla ströndina. Stundum keyrt í sjóinn aðeins :)
Í Cape Reinga er lítill viti og skilti til að sýna hversu langt er til nokkurra borga í heiminum, ekki Reykjavík samt ;) Þarna sér maður höfin 2 mætast og þarna er mjög fallegt. Á leiðinni tilbaka til Paihia var stoppað í litlum sjávarbæ og borðað "fish and chips". Svo hitti ég íslenskt par í ferðinni til Cape Reinga. Heyrði allt í einu tungumál sem ég hafði ekki heyrt lengi og átti að þekkja :) Hef ekki talað stakt orð í íslensku síðustu rúmar fimm vikurnar og fór alltaf að við þau á ensku! Hehe...
Svo hélt ég aftur til Auckland í gær og í dag hélt ég svo af stað tilbaka heim og er komin til Sydney. Á morgun er það svo Perth, Singapore og Kuala Lumpur. Verð svo aftur tvær nætur í KL, fer svo til London og er eina nótt þar og svo er það bara heim. Þannig að ef allt fer eftir planinu ætti ég að vera komin heim eftir 5 daga :/ Auðvitað hlakkar mig til að sjá alla en verð að viðurkenna að mig langar rosalega að vera lengur á Nýja Sjálandi og finnst þessi tími hafa liðið alltof hratt. Það var líka enn svo margt eftir að sjá og gera. Þarf bókað að fara aftur :) Finnst nú líka að stelpurnar í vinnunni gætu unnið svona 2 vaktir, af mínum, á mann næsta mánuðinn svo ég geti verið lengur ;) Þær verða lausar við mig mánuð í viðbót og ég get verið hér lengur, svona win-win dæmi sko ;) Hehe...
Var svo að reyna njóta sólarinnar sem mest í dag, sat á pallinum á þakinu, las og naut útsýnisins yfir brúnna, höfnina og óperuhúsið hér í Sydney :) Passlegur hiti, rúmar 20 og sól :) Er svo búin að vera reyna koma öllu betur fyrir í töskunum. Ótrúlegt hvað maður safnar að sér miklu drasli, og hve fljótt, á ferðalagi og hvað það er leiðinlegt að drösla öllu með sér um allt. En þetta er víst partur af því að flakka um, að drösla með sér eigum sínum. Það er samt eitthvað við það að henda í tösku og fara í ferðalag, skilja allt eftir og ekki hugsa um hvað er í gangi heima. Og kannski enn frekar núna þegar ég er hálf heimilislaus og hef litlar skuldbindingar. Það er einhver frelsistilfinning. En svo getur verið leiðinlegt að vera á hosteli þar sem er skemmtistaður við hliðina á og aðal reykingasvæðið er undir glugganum þínum, það brakar svo mikið í kojunum að þú bíður eftir að fá stelpuna í efri kojunni í fangið, þú átt bara óhrein föt en þvottavélin er ekki laus og það eina sem þú hefur borðað í langan tíma eru samlokur, kex og ávextir. Já, það eru alltaf kostir og gallar við allt. En best að henda sér í kojuna, þá síðustu í þessari ferð meira segja ;), flug eldsnemma. Cheers :)
Skrifað af Ingibjörgu
15.02.2012 07:23
Dunedin - Lake Tekapo - Auckland
Átti annan frábæran dag í Dunedin. Var pínu fúl að hafa ekki getað verið áfram í Queenstown en fór svo í ferð til að sjá mörgæsir, seli, sæljón og royal albatross (veit ekki hvað kallast á íslensku) og var sko bara ekkert ósátt eftir það. Eftir viðkomu í fræðslumiðstöð fyrir dýrin var keyrt með okkur um hálftíma út úr bænum og farið með okkur inn á tún hjá bónda (einkaeign) við sjóinn, þar sem við gátum fylgst náið með selum í klettum við sjóinn og svo sáum við yellow eyed mörgæsir, sem eru by the way þær sjaldgæfustu í heimi. Við löbbuðum eftir slóð niður í aðra fjöru en selirnir voru við og leiðsögumaðurinn var í miðri setningu að segja okkur að það væri happa glappa hversu margar mörgæsir maður sæi og hve nálægt þegar við sáum eina standa á miðjum stígnum, svona eins og til að bjóða okkur velkomin :) og haggaðist ekki þó við löbbuðum framhjá. Það er líka borin mikil virðing fyrir dýralífinu þarna og engum leyft að fara of nálægt eða vera fyrir. T.d. kom ein í land þegar við vorum á stígnum og við færðum okkur til að styggja hana ekki eða trufla. Sú rölti svo bara framhjá okkur eins og ekkert væri. Geðveikt :) Sáum líka nokkra unga, eða unglinga, sem komu alveg að einum kofanum, sem hafa verið byggðir til að fylgjast með dýrunum í hæfilegri fjarlægð. Það var eiginlega eins og þeir væru komnir til að skoða okkur :) Elska svona, þar sem maður getur fylgst með dýrunum í sínu eigin umhverfi. Og mörgæsir eru æði :) að sjá þær koma úr sjónum og rölta vaggandi í land er yndislegt :) Gæti horft á þær endalaust.
Eftir eina nótt í Dunedin var það rútan, enn og aftur, og haldið til Tekapo vatns, sem er enn eitt fallegt vatnið hér á Nýja Sjáland. Var þar eina nótt, og dvaldi á hosteli sem er alveg við vatnið, með geðveikt útsýni. Næs að sitja úti, chilla og dást að fallegri náttúru og rölta um. Eiginlega fullkomin staður til að stoppa og slaka í nokkra daga. Það er bara pínulítill bær við vatnið og svo rólegt andrúmsloft. Það var geggjað veður og við gátum séð Cook fjall í fjarlægð, sem er hæsta fjall Nýja Sjálands. En ég hafði bara einn dag og svo var það rúta til Christchurch, þar sem ég kláraði hringinn og mína 2 vikna rútuferð. Við keyrðum gegnum Christchurch og það var pínu sorglegt. Það er enn verið að vinna að því að laga hús og annað þar eftir stóra jarðskjálftann sem var fyrir tæpu ári síðan. Mörg hús eru ekki enn nothæf og enn uppbygging eftir. En ég hentist beint upp í flugvél og hélt aftur til norður eyjunnar, til Auckland. Hér ætlaði ég bara að vera í 2 nætur en ákvað svo vegna þreytu á að vera sífellt á ferðinni og rigningarspár að vera hér í 4 daga og sleppa 2 daga ferð til Coromandel. Ég fer nefnilega svo í aðra 2 daga ferð þann 18., svo ein enn nótt hér í Auckland, og held svo af stað tilbaka heim. Þannig að næstu daga ætla ég bara að gera sem minnst. Í gær fór ég í hop on, hop off rútuna sem keyrir mann á helstu staði hér í Auckland, stoppaði á safninu og skoðaði og fór á Maori menningarsýningu, og fór í skytower. En sleppti skyjumpinu ;) Sá annað fólk stökkva samt. Hafði svo engan herbergisfélaga sl nótt sem var næs :) svaf svo vel og lengi.
Rölti áðan um í rigningunni, fékk mér sushi og fór í bíó :) Fínt að fá nokkra daga þar sem er ekkert plan :) Eða eins of þeir segja hér: ,,Sweet as'' :) Ég man þegar ég var nýkomin og heyrði alla segja þetta og hélt að þeir segðu ass. En nei þetta er as og sweet as þýðir kúl, sammála, ok. Hehe.. :)
Skrifað af Ingibjörgu
11.02.2012 10:08
Wanaka - Queenstown
Jæja, kominn tími á smá update. Fyrir 4 dögum var ferðinni heitið úr rigningunni í Franz Josef til Wanaka, sem er í Otago héraði og er ,,the lake district". Við fórum frá FJ þar sem fjöllin eru þakin gróðri og regnskógar, til staðar þar sem er minni gróður og gordjöss vötn. Á leiðinni til Wanaka stoppuðum við hjá the blue pools, sem eru á sem er tærblá. Að henni var ganga gegnum skóg og yfir brýr. Svo stoppuðum við hjá 2 algjörlega, ótrúlega fallegum vötnum, Wanaka vatni og öðru (sem ég man ekki nafnið á). Þetta var eins og að horfa á póstkort... Stillt fallegt vatn sem speglaði falleg fjöllin í kring, blár himinn, sól og nokkur hvít ský :) Wanaka er lítill, kósí bær við fallegt vatn, umkringdur háum, flottum fjöllum. Við vatnið er lítil strönd og bryggjur. Ég eyddi svo deginum í Wanaka í að rölta um bæinn, chilla á ströndinni og horfa á krakka og endur leika sér í vatninu, í sól og blíðu, meðan ég borðaði súkkulaðiís :)
Það var bara tími fyrir 1 dag í Wanaka og svo hélt ég til Queenstown, þar sem ég hef eytt síðustu 3 dögum, og reyndi meira segja að breyta plönum og vera lengur því í dag átti að vera rugby leikur opinn almenning og svo hinn vikulegi markaður, já og veður til fallhlífastökks. En það var ekki hægt og allt í lagi. Gerði helling og búið að vera mjög gaman.
Fyrsta daginn fór ég strax, með þýskri stelpu sem ég kynntist í rútunni, í jet boat siglingu á nálægri á. Það var geðveikt! Það er farið upp milli þröngra kletta, svo maður heldur að þeir klessi á, og svo snýst báturinn 360 gráður. Snilld! Svo röltum við um bæinn, smökkuðum hinn heimsfræga Fergburger, sem er by the way besti borgari sem ég hef smakkað :) Queenstown er svona eins og stærri útgáfa af Wanaka, meira fólk og meira um að vera en líka umkringd fallegum, háum fjöllum og við vatn, með strönd og höfn. Queenstown er adrenalín borg NZ og staðurinn til að fara í fallhlífastökk, teygjustökk, svifflug og allt það. Þar er allt iðandi af lífi og fjöri. Næsta dag, fór ég upp gondolann í fjallshlíð við bæinn, og þaðan er geggjað útsýni yfir bæinn. Svo er hægt að fara niður með the Luge, en þá keyrir maður í litlum kappakstursbíl niður. Sem ég gerði auðvitað :) Hitti svo aðra þýska vinkonu mína og við kíktum út að borða og smökkuðum smá lókal hvítvín.
Ég var orðin heit fyrir að fara í fallhlífastökk með herbergisfélaga mínum, sem er írskur tannlæknir, en það var ekki hægt að fara á fimmtudaginn vegna veðurs :( og allur dagurinn í gær fór í ferð til Milford Sound, sem er svo fallegur staður að orð geta ekki lýst því. Ég tók fullt af myndum en, eins og svo oft hér, var ég ekki ánægð með þær. Þær ná þessu bara ekki...
Í dag er ég svo mætt til Dunedin og ætla í smá dagsferð hér að sjá mörgæsir :) Á morgun held ég svo til Tekapo. Cheers :)
Skrifað af Ingibjörgu
06.02.2012 00:00
Nelson - Greymouth - Franz Josef
Þá er ég komin til Franz Josef, eftir einnar nætur stop í Greymouth, frá Nelson. Ég féll alveg fyrir Nelson og var svo heppin að vera þar um helgina því það var festival í gangi og því risa markaður, mun stærri en venjulegi laugardagsmarkaðurinn, og hægt að kaupa allt milli himins og jarðar. Svo voru götulistamenn og ýmis skemmtiatriði og anditsmálning. Einn af götulistamönnunum sagðist vera ástralskur en búa í Reykjavík á Íslandi. Fyndið :) Allir kaupmennirnir í aðalgötunni settu vörur út á götur og mynduðu markað þar. Lókal veitingamenn elduðu mat, m.a. indverskan, sushi og svo allt þetta venjulega. Þetta er gert því þessi helgi er löng helgi, og hátíðarhelgi því í dag, 6. Febrúar, er Waitangi dagur. En þá er haldið upp á að þennan dag árið 1840 skrifuðu Maori og Ensku innflytjendurnir undir sáttmála sín á milli. Það er því víða lokað í dag og á einu kaffihúsi, sem ég fór áðan, var 15% álagning því það er opið á hátíðardegi!
Hostelið sem ég var á, i Nelson, var einnig það besta sem ég hef komið á og ég var með yndislega herbergisfélaga :) Semsagt frábær helgi ;) Mig langaði bara að vera lengur þarna og hefði bókað gert það ef ég hefði meiri tíma hér.
Bærinn er á mjög veðursælum stað og mjög mikið af útlendingum býr þar og svo er bara svo góð stemmning þar og bærinn passlega stór og svo fallegur og kósí. Sá einmitt að það er sjúkrahús þarna... Hmm... ;)
Allavega, svo hélt ég til Greymouth, sem er ekkert spes bær, bara passlegt stopp milli áfangastaða. Leiðin til Greymouth er reyndar falleg, meðfram ströndum og klettar sums staðar í sjónum. Meðal annars pönnukökuklettar (bein þýðing), sem við stoppuðum hjá til að skoða. Mjög flottir. Í Greymouth rölti ég smá um og tók því svo rólega. Í dag var ferðinni svo haldið áfram til Franz Josef, en það er jökull og því staðurinn til að fara í jöklaferðir, ísklifur og slíkt. Þar sem ég hef lítinn tíma gat ég ekki farið í dagsferð upp á jökul en ég splæsti í þyrluflug upp á Franz Josef jökul, þar sem við lentum og fengum að labba aðeins um, og það var geðveikt!!! Þvílíkt útsýni. Það var, og er þoka yfir þorpinu, sem er rétt hjá jöklinum, en þegar við komum upp á jökulinn var sól og blár himinn. Geggjað :) Af því að ég var ein á ferð, fékk ég að sitjandi frammí, hjá flugmanninum, og var því með besta útsýnið :) Gott að ég dreif mig strax eftir að við komum því stuttu eftir að við komum tilbaka fór að rigna, þannig að ég dreif mig i ,,wildlife center'' fyrir kiwi fuglinn og splæsti í "baksviðspassa" og fékk að sjá kiwi unga. Algjör krútt :) Það er nefnilega nánast ómögulegt að sjá þá í náttúrunni því þeir eru næturdýr. Svo eru þessi grey í útrýmingarhættu.
Klukkan er að verða 18 hér, ég sit í matsalnum á hostelinu og allir gluggar eru opnir og ég heyri rigninguna dynja á þakinu, á gólfinu, bekkjunum og borðunum, vappa um litlir fuglar (sem ég veit ekki hvað heita) og leita að mat. Hver af öðrum koma þeir inn um gluggann, skanna svæðið, og hverfa svo :) Jæja, fyrst það er rigning (en ekki rok með 'enni) ætla ég í gönguferð og vígja nýja regnjakkann minn. Elska svona rigningu :) Á morgun er það svo Wanaka :)
Skrifað af Ingibjörgu
03.02.2012 06:04
Kiakoura-Nelson
Eftir eina nótt á hóteli í Auckland og flug snemma daginn eftir til Christchurch, fór ég nánast strax í rútuna og hóf 13 daga rútuferð um syðri eyjuna. Fyrsti áfangastaður var Kaikoura, sem er lítill og kósí bær við sjóinn, með tæplega 4000 íbúum. Þetta er staðurinn til að borða ferska sjávarrétti og fara í siglingar til að skoða og synda með selum og höfrungum og sjá hvali. Þetta er staðurinn þar sem Maui sat þegar hann veiddi nyrðri eyjuna upp úr sjónum, skv Maori. Herbergisfelagar mínir voru 2 stelpur, frá Japan og Þýskalandi. Við röltum í supermarkaðinn í fyrradag og keyptum mat og local hvítvín. Elduðum svo, drukkum vín og spjölluðum :) Ég átti svo ísí brísí dag í gær, svaf til kl 10 og rölti svo um bæinn, tók myndir og fékk mér sushi. Allann tímann meðan ég var í Kiakoura þá var mjög skýjað og smá rigning annað slagið. Kiakoura hefur víst mjög falleg fjöll en ég sá þau ekki alveg nógu vel. En bærinn er sjarmerandi og fallegt í kring. Andrúmsloftið er rólegt, ekki of heitt, ekki of kalt, og allir svo vingjarnlegir. Kærkomin tilbreyting frá heitu stórborgunum sem ég hef dvalið í undanfarið :)
Nú er ég svo komin til Nelson, eftir viðkomu í Picton. Nelson er tæplega 50.000 manna bær, og sagður hafa besta veðrið og talin ein af mest ,,liveable cities" á Nýja Sjálandi. Verður spennandi að sjá. Við fyrstu kynni er þetta yndislegur bær. Rölti um miðbæinn áðan og við aðalgötuna eru marglit gömul hús og blóm í næstum hverri gluggasyllu. Hostelið sem ég er á er líka það besta sem ég hef verið á. Kósí, gamalt, heimilislegt, uppgert hús rétt hjá miðbænum :) Hef rosalega góða tilfinningu fyrir þessum bæ og líst svo vel á hann. Á morgun er svo vikulegur markaður bæjarins og svo verður maður víst að prófa ísinn, sem er búinn til hér í bænum og er sagður vera sá allra besti. Það er ekki sól, heldur skýjað, en rosaleg gott veður og logn. Krossa fingur og vona að sólin láti sjá sig. Það er líka víst þessi fína strönd hér. Sjáum hvað verður á morgun :) Annars hef ég heyrt að veðrið á NZ sé búið að vera mjög breytilegt og óútreiknanlegt núna í sumar. Hmm.. Bara eins og heima ;)
Skrifað af Ingibjörgu
- 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37
