06.02.2012 00:00

Nelson - Greymouth - Franz Josef

Þá er ég komin til Franz Josef, eftir einnar nætur stop í Greymouth, frá Nelson. Ég féll alveg fyrir Nelson og var svo heppin að vera þar um helgina því það var festival í gangi og því risa markaður, mun stærri en venjulegi laugardagsmarkaðurinn, og hægt að kaupa allt milli himins og jarðar. Svo voru götulistamenn og ýmis skemmtiatriði og anditsmálning.  Einn af götulistamönnunum sagðist vera ástralskur en búa í Reykjavík á Íslandi. Fyndið :) Allir kaupmennirnir í aðalgötunni settu vörur út á götur og mynduðu markað þar. Lókal veitingamenn elduðu mat, m.a. indverskan, sushi og svo allt þetta venjulega. Þetta er gert því þessi helgi er löng helgi, og hátíðarhelgi því í dag, 6. Febrúar, er Waitangi dagur. En þá er haldið upp á að þennan dag árið 1840 skrifuðu Maori og Ensku innflytjendurnir undir sáttmála sín á milli. Það er því víða lokað í dag og á einu kaffihúsi, sem ég fór áðan, var 15% álagning því það er opið á hátíðardegi! Hostelið sem ég var á, i Nelson, var einnig það besta sem ég hef komið á og ég var með yndislega herbergisfélaga :) Semsagt frábær helgi ;) Mig langaði bara að  vera lengur þarna og hefði bókað gert það ef ég hefði meiri tíma hér.  Bærinn er á mjög veðursælum stað og mjög mikið af útlendingum býr þar og svo er bara svo góð stemmning þar og bærinn passlega stór og svo fallegur og kósí. Sá einmitt að það er sjúkrahús þarna... Hmm... ;) Allavega, svo hélt ég til Greymouth, sem er ekkert spes bær, bara passlegt stopp milli áfangastaða. Leiðin til Greymouth er reyndar falleg, meðfram ströndum og klettar sums staðar í sjónum. Meðal annars pönnukökuklettar (bein þýðing), sem við stoppuðum hjá til að skoða. Mjög flottir. Í Greymouth rölti ég smá um og tók því svo rólega. Í dag var ferðinni svo haldið áfram til Franz Josef, en það er jökull og því staðurinn til að fara í jöklaferðir, ísklifur og slíkt. Þar sem ég hef lítinn tíma gat ég ekki farið í dagsferð upp á jökul en ég splæsti í þyrluflug upp á Franz Josef jökul, þar sem við lentum og fengum að labba aðeins um, og það var geðveikt!!! Þvílíkt útsýni. Það var, og er þoka yfir þorpinu, sem er rétt hjá jöklinum, en þegar við komum upp á jökulinn var sól og blár himinn. Geggjað :) Af því að ég var ein á ferð, fékk ég að sitjandi frammí, hjá flugmanninum, og var því með besta útsýnið :) Gott að ég dreif mig strax eftir að við komum því stuttu eftir að við komum tilbaka fór að rigna, þannig að ég dreif mig i ,,wildlife center'' fyrir kiwi fuglinn og splæsti í "baksviðspassa" og fékk að sjá kiwi unga. Algjör krútt :) Það er nefnilega nánast ómögulegt að sjá þá í náttúrunni því þeir eru næturdýr. Svo eru þessi grey í útrýmingarhættu. Klukkan er að verða 18 hér, ég sit í matsalnum á hostelinu og allir gluggar eru opnir og ég heyri rigninguna dynja á þakinu, á gólfinu, bekkjunum og borðunum, vappa um litlir fuglar (sem ég veit ekki hvað heita) og leita að mat. Hver af öðrum koma þeir inn um gluggann, skanna svæðið, og hverfa svo :) Jæja, fyrst það er rigning (en ekki rok með 'enni) ætla ég í gönguferð og vígja nýja regnjakkann minn. Elska svona rigningu :) Á morgun er það svo Wanaka :) 
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37