03.02.2012 06:04

Kiakoura-Nelson

Eftir eina nótt á hóteli í Auckland og flug snemma daginn eftir til Christchurch, fór ég nánast strax í rútuna og hóf 13 daga rútuferð um syðri eyjuna. Fyrsti áfangastaður var Kaikoura, sem er lítill og kósí bær við sjóinn, með tæplega 4000 íbúum. Þetta er staðurinn til að borða ferska sjávarrétti og fara í siglingar til að skoða og synda með selum og höfrungum og sjá hvali. Þetta er staðurinn  þar sem Maui sat þegar hann veiddi nyrðri eyjuna upp úr sjónum, skv Maori. Herbergisfelagar mínir voru 2 stelpur, frá Japan og Þýskalandi. Við röltum í supermarkaðinn í fyrradag og keyptum mat og local hvítvín. Elduðum svo, drukkum vín og spjölluðum :) Ég átti svo ísí brísí dag í gær, svaf til kl 10 og rölti svo um bæinn, tók myndir og fékk mér sushi. Allann tímann meðan ég var í Kiakoura þá var mjög skýjað og smá rigning annað slagið.  Kiakoura hefur víst mjög falleg fjöll en ég sá þau ekki alveg nógu vel. En bærinn er sjarmerandi og fallegt í kring. Andrúmsloftið er rólegt, ekki of heitt, ekki of kalt, og allir svo vingjarnlegir. Kærkomin tilbreyting frá heitu stórborgunum sem ég hef dvalið í undanfarið :) Nú er ég svo komin til Nelson, eftir viðkomu í Picton. Nelson er tæplega 50.000 manna bær, og sagður hafa besta veðrið og talin ein af mest ,,liveable cities" á Nýja Sjálandi. Verður spennandi að sjá. Við fyrstu kynni er þetta yndislegur bær. Rölti um miðbæinn áðan og við aðalgötuna eru marglit gömul hús og blóm í næstum hverri gluggasyllu. Hostelið sem ég er á er líka það besta sem ég hef verið á. Kósí, gamalt, heimilislegt, uppgert hús rétt hjá miðbænum :) Hef rosalega góða tilfinningu fyrir þessum bæ og líst svo vel á hann. Á morgun er svo vikulegur markaður bæjarins og svo verður maður víst að prófa ísinn, sem er búinn til hér í bænum og er sagður vera sá allra besti. Það er ekki sól, heldur skýjað, en rosaleg gott veður og logn. Krossa fingur og vona að sólin láti sjá sig. Það er líka víst þessi fína strönd hér. Sjáum hvað verður á morgun :) Annars hef ég heyrt að veðrið á NZ sé búið að vera mjög breytilegt og óútreiknanlegt núna í sumar. Hmm.. Bara eins og heima ;)   
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37