31.01.2012 00:00

Sydney - Auckland

Smá um Sydney. Var þar í 2 daga og líkaði bara mjög vel. Ekki alveg eins heitt og rakt og á hinum stöðunum sem ég hef heimsótt, sem er mjög fínt því yfir 30 gráður er bara of mikið af því góða og hvað þá ef það er mikill raki! Ekki alveg my thing sko. En þar var fínt, svona 25-30 stiga hiti og sól. Setti túristagírinn í botn strax í fyrradagsmorgun og fór hring um borgina í svona tveggja hæða rauðri rútu, eða jump on, jump off bus. Þá getur maður stoppað þar sem maður vill og farið svo aftur áfram með rútunni. Ég stoppaði á nokkrum stöðum, t.d. Darling Harbour, en hostelið mitt var við Circular Quay, sem er við The Rocks (elsta part borgarinnar), nálægt brúnni og óperuhúsinu. Svo fór ég í dýragarð og sædýrasafn. Sem var bara gaman, enda svona neðansjávargöng svo maður sá hákarla, skötur og önnur sjávardýr synda yfir sér. Geðveikt flott :) Í dýragarðinum voru svo auðvitað kengúrur, wallabies, kóalabirnir og fleira. Skemmtilegast var að sjá mörgæsirnar því maður gat séð þær neðansjávar, synda :) held ég hafi setið og horft á þær í klukkutíma :) Ég verð samt alltaf pínu döpur þegar ég fer í svona dýragarða, því manni finnst að dýrin ættu að fá að vera í sínu náttúrulega umhverfi en ekki búrum, sama have flott þau eru.  Í gær svaf ég út og fór svo í siglingu um höfnin og rölti svo aðeins um elsta part borgarinnar, hér rétt hjá hostelinu, sem eru þröngar götur með búðum og galleríum. Mjög sjarmerandi og flott hverfi. Borðaði kvöldmat á ekta ítölskum pizzustað. Mmm... Allir töluðu með ítölskum hreim og ítölsk tónlist hljómaði. Reyndar var boðið upp á kengúrukjöt á hostelinu en mig langaði ekki í það. Hef smakkað það áður og var ekki hrifin. Í dag hélt ég svo til fyrirheitna landsins og aðal áfangastaðar ferðarinnar, Nýja Sjálands :) Hlakka mikið til að ferðast um hér. Ekki að ég hafi ekki haft það gott og gaman í Ástralíu, held bara að Nýja Sjáland sé meira fyrir mig :) Það kemur allavega í ljós mjöööög fljótlega. Er núna á hóteli nálægt flugvellinum í Auckland því ég á flug snemma í fyrramálið til Christchurch, þar sem ég byrja 2 vikna rútuferð um syðri eyjuna. Ætla að njóta þess í botn að vera á hóteli og því engir herbergisfélagar og kojur. Bara notalegt rúm, sjónvarp og allur pakkinn :) Næstu vikurnar verða svo áfram hostel, kojur og misjafnir herbergisfélagar en það hefur líka sinn sjarma :) enn sem komið er allavega :/ Meira frá Kaikoura :) 
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37