29.01.2012 10:37
Airlie Beach & Whitsundays
Er mætt á síðasta áfangastað minn í Ástralíu, Sydney, eftir 2 góða en mjög svo heita daga á Airlie strönd. Airlie strönd er á austurströndinni, ca á milli Brisbane og Cairns, og þar fyrir utan eru Whitsunday eyjarnar. Það eru 74 fallegar eyjar með fallegum ströndum sem eru vinsæll áfangastaður bæði erlendra og innlendra ferðamanna. Það er hægt að dvelja á sumum þeirra og það er misdýrt en ódýrast að vera á Airlie strönd og fara í siglingu, sem ég gerði. Það er hægt að velja um mörg fyrirtæki til að fara með en eitt kallast ocean rafting en þá er farið á rafting bátum og "leikið sér" í sjónum á leiðinni :) Ég valdi þennan kost og það var geðveikt! Við fórum auðvitað að sjá frægustu eyjuna, fórum á útsýnisstað til að taka myndir af henni, og svo var pick nick á ströndinni sjálfri, en mesta gamanið var á leiðinni :) Það var allt gert til að velta bátnum til og hossast og auðvitað gefið pínu í líka. Bara snilld :) Ég bar fanatískt á mig sólarvörn, SPF 30, en brann samt á einum stað, á hökunni! Verð að æfa betur og endurskoða tækni mína í sólaráburði ;) Það fyndna er að það var búið að rigna í e-a dag áður en ég kom en svo fengum við sól og svo daginn eftir var skýjað og rigning seinnipartinn. Það ringdi það mikið að flugið mitt tafðist aðeins. En ég komst og líkar bara vel við Sydney við fyrstu kynni en mig hlakkar líka rosalega til að fara til Nýja Sjálands. Er búin að hitta nokkra sem voru að koma þaðan og allir geðveikt heillaðir :)
En fyrst er það að skoða Sydney.
Þangað til næst, cheers :)
Skrifað af Ingibjörgu
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37
