26.01.2012 06:20

Great Ocean Road

Í fyrradag var það the great ocean road sem er vegur rétt hjá Melbourne sem liggur eftir hlykkjótyro strandlengju þar sem eru klettar í sjónum og litlar strendur. Þarna eru litlir strandabæir, mjög fallegt og svona sumarfrísfílingur :) Fólk í sólbaði, að grilla, sigla, á bretti eða leika sér í fjörunni. Við fórum líka í Otway national park sem er gullfallegur skógur þar sem gróðurinn er sums staðar svo þéttur að maður sá varla til himins. Grænn gróður, ferskt loft, dýrahljóð... :) need I say more? Kvöldið fór svo bara í chill og hvíld fyrir flug til Brisbane í gær. Að troða í töskuna og sonna. Ótrúlegt hvað fylgir manni af drasli! Ég eyddi nóttinni í Brisbane og hélt svo hingað til Airlie Beach. Já, það er strandastaður en hér er hálfskýjað og ringt mikið undanfarna daga. Planið er svo að fara í smá siglingu út í eina eyju hér. Eyjarnar eru velþekktar, kallast Whitsundays, og eru tótallí gordjöss :) Ég vona bara að veðurspáin rætist ekki og það verði smá sól og þurrt. Verð bara hér í tvo daga og svo nokkra daga í Sydney áður en ég held til Nýja Sjálands. Tíminn flýgur... En í dag er Australian Day, sem mér skilst að snúist bara um að ástralir séu að fagna sjálfum sér :) hér eru flestar búðir lokaðar, margir klæddir förum merktum Ástralíu eða með fánanum á og ég hef líka séð nokkra klædda fánanum sem skikkju :) svo eru víst partí alls staðar í kvöld. Happy Australian Day! :)
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37