23.01.2012 09:17
The Penguin Parade
Átti ÆÐISLEGAN dag í gær! Ég fór í dagsferð og við fórum í ekki dýragarð heldur ,,sanctuary" fyrir dýr eins og emua, wallabies (sem eru eiginlega litlar kengúrur), dingos, og kengúrur. Svo fórum við á verndarsvæði og fræðslustöð fyrir kóalabirni og ohh hvað þeir eru sætir :) Við kíktum líka við í súkkulaðiverksmiðju og á lítilli strönd. Allt var þetta á eyju hér rétt hjá Melbourne sem heitir Phillip Island. Við fórum líka á næstu eyju við hliðina á og fórum á gam alt bóndabýli sem hefur verið haldið eins og það var 1850-1860. Þetta er svona til að sýna fólki hvernig hlutirnir gengu fyrir sig í sveitinni í gamla daga. Það var sýnt hvernig smalahundar vinna, hvernig á að nota svipu og búmerang já og hvernig á að rýja kindur! Það fannst fólki alveg stórmerkilegt og vakti mikla lukku. Ég var ekki svo spennt enda séð þetta ,,nokkrum sinnum" áður ;) En þetta gæti verið góð hugmynd fyrir ættingja mína í sveitunum heima ef þeir vilja fara út í ferðamannaiðnaðinn? ;)
Rúsínan í pylsuendanum og aðalástæða ferðarinnar var svo að sjá ,,the penguin parade" eða þegar minnstu mörgæsir í heiminum koma heim í land seinnipartinn, labba upp ströndina og fara í holurnar sínar. Fyrst fórum við í fræðslumiðstöð og lærðum um þessar merkilegu verur, en þar eru svona göngubrýr við sjóinn og gullfalleg náttúra og útsýni. Þar var líka hægt að sjá nokkrar mörgæsir í felum í holunum sínum, þær sem höfðu ekki farið að veiða þennan dag. Rétt fyrir sólsetur raðar fólk sér á afmörkuð svæði á ströndinni sest í sandinn og fylgist með mörgæsunum koma í land í litlum hópum. Það koma kringum 1000 mörgæsir og þær eru svo mikil krútt. Þær fara varlega upp ströndina í litlum hópum og ef ein hræðist og snýr við gera hinar það sama, fara aftur út í sjóinn og byrja upp á nýtt :) Það má ekki taka myndir þarna enda skiljanlegt og bara næs að njóta augnabliksins, sitjandi á ströndinni við sólsetur og fylgjast með mörgæsunum í gullfallegu umhverfi, og vera ekkert að hugsa um að taka myndir :) Það er bara ekki hægt að lýsa svona upplifun. Algjörlega eitt það merkilegasta sem ég hef gert :)
Í dag rölit ég svo um Melbourne, sem er æðisleg borg, svona blanda af gömlum og nýjum byggingum, höfn, markaðir, og bara allt til alls. Hér er líka frí rúta fyrir túrista sem fer hring um miðbæinn þannig að maður getur séð allt það merkilegasta á einfaldan og aðgengilegan hátt :)
Á morgun er það svo ferð upp the great ocean road, sem strandlengja hér frá Melbourne með fallegum klettum og geggjuðu útsýni. Hinn daginn er það svo flug til Brisbane. Svona þegar maður er að ná áttum hér heldur maður á nýjan stað... Bestu kveðjur á klakann héðan frá Ástralíu :)
Skrifað af Ingibjörgu
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37
