19.01.2012 10:09

Komin!

Þá er ég komin hinum megin á hnöttinn eftir langt ferðalag. Ég flaug suður á laugardeginum, til London á sunnudagsmorgninum, eyddi deginum í London og flaug svo til Kuala Lumpur um kvöldið. Flugið til KL tók 13 klst og tók líka á taugarnar :/ Full vél, grátandi börn, óþægileg sæti... Enda svaf ég mikið í KL, rétt tók smá rölt en ekki eina einustu mynd. Leigubílstjórinn minn frá flugvellinum spilaði roxette, var mjög snyrtilegur og kurteis. Hann hafði gps guidinn á en ignoraði mest sem hann sagði. Kallinn sem vann á hótelinu vildi koma við hárið á mér. Hann sá svipinn á mér þegar hann spurði, og sagði svo: ,,Maybe later".  Eftir 2 nætur í KL var það svo 1 1/2 klst flug til Singapore, svo rúmlega 5 klst flug til Perth, í Ástralíu. Á leiðinni kynntist ég konu frá Perth, sem bauð mér far frá og til flugvallarins og gistingu :) sem ég þáði með þökkum og svaf á sófanum hennar.  Það fyndna er að ég spjallaði við 3 manneskjur á leiðinni og 2 af þeim eru prestar! Er verið að reyna senda mér skilaboð eða??? Konan í Perth er prestur, ég sat við hliðina á prest frá Nýja Sjáland í einu fluginu sem var að koma úr trúboði í Gambíu. Svo var það líka ástralskur námuverkamaður sem býr í Tæland en við rædrum ekki trúmál ;) hehe... Fékk fullt af ráðleggingum varðandi ferðalagið og svo drepur tímann að spjalla við einhvern :) Í dag flaug ég svo frá Perth til Alice Springs, sem er tæplega 3 klst flug, en þetta er í miðri Ástralíu, í eyðimörkinni, og hér var 40 stiga hiti og sól í dag! Já, ég vildi sól og sumaryl. Be careful what you wish for! Á morgun fer ég svo í dagsferð til Uluru, eða Ayers rock, sem er eiginlega stór steinn í eyðimörkinni. Hljómar vel en googlið þetta áður en þið dæmið. Ég hlakka mikið til og er að smella í túristagírinn :) Ég held svo til Melbourne hinn daginn. Meira þaðan :) Cheers ;)
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 55499
Samtals gestir: 24247
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:35:37