06.02.2012 00:00
Nelson - Greymouth - Franz Josef
Þá er ég komin til Franz Josef, eftir einnar nætur stop í Greymouth, frá Nelson. Ég féll alveg fyrir Nelson og var svo heppin að vera þar um helgina því það var festival í gangi og því risa markaður, mun stærri en venjulegi laugardagsmarkaðurinn, og hægt að kaupa allt milli himins og jarðar. Svo voru götulistamenn og ýmis skemmtiatriði og anditsmálning. Einn af götulistamönnunum sagðist vera ástralskur en búa í Reykjavík á Íslandi. Fyndið :) Allir kaupmennirnir í aðalgötunni settu vörur út á götur og mynduðu markað þar. Lókal veitingamenn elduðu mat, m.a. indverskan, sushi og svo allt þetta venjulega. Þetta er gert því þessi helgi er löng helgi, og hátíðarhelgi því í dag, 6. Febrúar, er Waitangi dagur. En þá er haldið upp á að þennan dag árið 1840 skrifuðu Maori og Ensku innflytjendurnir undir sáttmála sín á milli. Það er því víða lokað í dag og á einu kaffihúsi, sem ég fór áðan, var 15% álagning því það er opið á hátíðardegi!
Hostelið sem ég var á, i Nelson, var einnig það besta sem ég hef komið á og ég var með yndislega herbergisfélaga :) Semsagt frábær helgi ;) Mig langaði bara að vera lengur þarna og hefði bókað gert það ef ég hefði meiri tíma hér.
Bærinn er á mjög veðursælum stað og mjög mikið af útlendingum býr þar og svo er bara svo góð stemmning þar og bærinn passlega stór og svo fallegur og kósí. Sá einmitt að það er sjúkrahús þarna... Hmm... ;)
Allavega, svo hélt ég til Greymouth, sem er ekkert spes bær, bara passlegt stopp milli áfangastaða. Leiðin til Greymouth er reyndar falleg, meðfram ströndum og klettar sums staðar í sjónum. Meðal annars pönnukökuklettar (bein þýðing), sem við stoppuðum hjá til að skoða. Mjög flottir. Í Greymouth rölti ég smá um og tók því svo rólega. Í dag var ferðinni svo haldið áfram til Franz Josef, en það er jökull og því staðurinn til að fara í jöklaferðir, ísklifur og slíkt. Þar sem ég hef lítinn tíma gat ég ekki farið í dagsferð upp á jökul en ég splæsti í þyrluflug upp á Franz Josef jökul, þar sem við lentum og fengum að labba aðeins um, og það var geðveikt!!! Þvílíkt útsýni. Það var, og er þoka yfir þorpinu, sem er rétt hjá jöklinum, en þegar við komum upp á jökulinn var sól og blár himinn. Geggjað :) Af því að ég var ein á ferð, fékk ég að sitjandi frammí, hjá flugmanninum, og var því með besta útsýnið :) Gott að ég dreif mig strax eftir að við komum því stuttu eftir að við komum tilbaka fór að rigna, þannig að ég dreif mig i ,,wildlife center'' fyrir kiwi fuglinn og splæsti í "baksviðspassa" og fékk að sjá kiwi unga. Algjör krútt :) Það er nefnilega nánast ómögulegt að sjá þá í náttúrunni því þeir eru næturdýr. Svo eru þessi grey í útrýmingarhættu.
Klukkan er að verða 18 hér, ég sit í matsalnum á hostelinu og allir gluggar eru opnir og ég heyri rigninguna dynja á þakinu, á gólfinu, bekkjunum og borðunum, vappa um litlir fuglar (sem ég veit ekki hvað heita) og leita að mat. Hver af öðrum koma þeir inn um gluggann, skanna svæðið, og hverfa svo :) Jæja, fyrst það er rigning (en ekki rok með 'enni) ætla ég í gönguferð og vígja nýja regnjakkann minn. Elska svona rigningu :) Á morgun er það svo Wanaka :)
Skrifað af Ingibjörgu
03.02.2012 06:04
Kiakoura-Nelson
Eftir eina nótt á hóteli í Auckland og flug snemma daginn eftir til Christchurch, fór ég nánast strax í rútuna og hóf 13 daga rútuferð um syðri eyjuna. Fyrsti áfangastaður var Kaikoura, sem er lítill og kósí bær við sjóinn, með tæplega 4000 íbúum. Þetta er staðurinn til að borða ferska sjávarrétti og fara í siglingar til að skoða og synda með selum og höfrungum og sjá hvali. Þetta er staðurinn þar sem Maui sat þegar hann veiddi nyrðri eyjuna upp úr sjónum, skv Maori. Herbergisfelagar mínir voru 2 stelpur, frá Japan og Þýskalandi. Við röltum í supermarkaðinn í fyrradag og keyptum mat og local hvítvín. Elduðum svo, drukkum vín og spjölluðum :) Ég átti svo ísí brísí dag í gær, svaf til kl 10 og rölti svo um bæinn, tók myndir og fékk mér sushi. Allann tímann meðan ég var í Kiakoura þá var mjög skýjað og smá rigning annað slagið. Kiakoura hefur víst mjög falleg fjöll en ég sá þau ekki alveg nógu vel. En bærinn er sjarmerandi og fallegt í kring. Andrúmsloftið er rólegt, ekki of heitt, ekki of kalt, og allir svo vingjarnlegir. Kærkomin tilbreyting frá heitu stórborgunum sem ég hef dvalið í undanfarið :)
Nú er ég svo komin til Nelson, eftir viðkomu í Picton. Nelson er tæplega 50.000 manna bær, og sagður hafa besta veðrið og talin ein af mest ,,liveable cities" á Nýja Sjálandi. Verður spennandi að sjá. Við fyrstu kynni er þetta yndislegur bær. Rölti um miðbæinn áðan og við aðalgötuna eru marglit gömul hús og blóm í næstum hverri gluggasyllu. Hostelið sem ég er á er líka það besta sem ég hef verið á. Kósí, gamalt, heimilislegt, uppgert hús rétt hjá miðbænum :) Hef rosalega góða tilfinningu fyrir þessum bæ og líst svo vel á hann. Á morgun er svo vikulegur markaður bæjarins og svo verður maður víst að prófa ísinn, sem er búinn til hér í bænum og er sagður vera sá allra besti. Það er ekki sól, heldur skýjað, en rosaleg gott veður og logn. Krossa fingur og vona að sólin láti sjá sig. Það er líka víst þessi fína strönd hér. Sjáum hvað verður á morgun :) Annars hef ég heyrt að veðrið á NZ sé búið að vera mjög breytilegt og óútreiknanlegt núna í sumar. Hmm.. Bara eins og heima ;)
Skrifað af Ingibjörgu
31.01.2012 00:00
Sydney - Auckland
Smá um Sydney. Var þar í 2 daga og líkaði bara mjög vel. Ekki alveg eins heitt og rakt og á hinum stöðunum sem ég hef heimsótt, sem er mjög fínt því yfir 30 gráður er bara of mikið af því góða og hvað þá ef það er mikill raki! Ekki alveg my thing sko. En þar var fínt, svona 25-30 stiga hiti og sól. Setti túristagírinn í botn strax í fyrradagsmorgun og fór hring um borgina í svona tveggja hæða rauðri rútu, eða jump on, jump off bus. Þá getur maður stoppað þar sem maður vill og farið svo aftur áfram með rútunni. Ég stoppaði á nokkrum stöðum, t.d. Darling Harbour, en hostelið mitt var við Circular Quay, sem er við The Rocks (elsta part borgarinnar), nálægt brúnni og óperuhúsinu. Svo fór ég í dýragarð og sædýrasafn. Sem var bara gaman, enda svona neðansjávargöng svo maður sá hákarla, skötur og önnur sjávardýr synda yfir sér. Geðveikt flott :) Í dýragarðinum voru svo auðvitað kengúrur, wallabies, kóalabirnir og fleira. Skemmtilegast var að sjá mörgæsirnar því maður gat séð þær neðansjávar, synda :) held ég hafi setið og horft á þær í klukkutíma :) Ég verð samt alltaf pínu döpur þegar ég fer í svona dýragarða, því manni finnst að dýrin ættu að fá að vera í sínu náttúrulega umhverfi en ekki búrum, sama have flott þau eru.
Í gær svaf ég út og fór svo í siglingu um höfnin og rölti svo aðeins um elsta part borgarinnar, hér rétt hjá hostelinu, sem eru þröngar götur með búðum og galleríum. Mjög sjarmerandi og flott hverfi. Borðaði kvöldmat á ekta ítölskum pizzustað. Mmm... Allir töluðu með ítölskum hreim og ítölsk tónlist hljómaði. Reyndar var boðið upp á kengúrukjöt á hostelinu en mig langaði ekki í það. Hef smakkað það áður og var ekki hrifin.
Í dag hélt ég svo til fyrirheitna landsins og aðal áfangastaðar ferðarinnar, Nýja Sjálands :) Hlakka mikið til að ferðast um hér. Ekki að ég hafi ekki haft það gott og gaman í Ástralíu, held bara að Nýja Sjáland sé meira fyrir mig :) Það kemur allavega í ljós mjöööög fljótlega. Er núna á hóteli nálægt flugvellinum í Auckland því ég á flug snemma í fyrramálið til Christchurch, þar sem ég byrja 2 vikna rútuferð um syðri eyjuna. Ætla að njóta þess í botn að vera á hóteli og því engir herbergisfélagar og kojur. Bara notalegt rúm, sjónvarp og allur pakkinn :) Næstu vikurnar verða svo áfram hostel, kojur og misjafnir herbergisfélagar en það hefur líka sinn sjarma :) enn sem komið er allavega :/ Meira frá Kaikoura :)
Skrifað af Ingibjörgu
29.01.2012 10:37
Airlie Beach & Whitsundays
Er mætt á síðasta áfangastað minn í Ástralíu, Sydney, eftir 2 góða en mjög svo heita daga á Airlie strönd. Airlie strönd er á austurströndinni, ca á milli Brisbane og Cairns, og þar fyrir utan eru Whitsunday eyjarnar. Það eru 74 fallegar eyjar með fallegum ströndum sem eru vinsæll áfangastaður bæði erlendra og innlendra ferðamanna. Það er hægt að dvelja á sumum þeirra og það er misdýrt en ódýrast að vera á Airlie strönd og fara í siglingu, sem ég gerði. Það er hægt að velja um mörg fyrirtæki til að fara með en eitt kallast ocean rafting en þá er farið á rafting bátum og "leikið sér" í sjónum á leiðinni :) Ég valdi þennan kost og það var geðveikt! Við fórum auðvitað að sjá frægustu eyjuna, fórum á útsýnisstað til að taka myndir af henni, og svo var pick nick á ströndinni sjálfri, en mesta gamanið var á leiðinni :) Það var allt gert til að velta bátnum til og hossast og auðvitað gefið pínu í líka. Bara snilld :) Ég bar fanatískt á mig sólarvörn, SPF 30, en brann samt á einum stað, á hökunni! Verð að æfa betur og endurskoða tækni mína í sólaráburði ;) Það fyndna er að það var búið að rigna í e-a dag áður en ég kom en svo fengum við sól og svo daginn eftir var skýjað og rigning seinnipartinn. Það ringdi það mikið að flugið mitt tafðist aðeins. En ég komst og líkar bara vel við Sydney við fyrstu kynni en mig hlakkar líka rosalega til að fara til Nýja Sjálands. Er búin að hitta nokkra sem voru að koma þaðan og allir geðveikt heillaðir :)
En fyrst er það að skoða Sydney.
Þangað til næst, cheers :)
Skrifað af Ingibjörgu
26.01.2012 06:20
Great Ocean Road
Í fyrradag var það the great ocean road sem er vegur rétt hjá Melbourne sem liggur eftir hlykkjótyro strandlengju þar sem eru klettar í sjónum og litlar strendur. Þarna eru litlir strandabæir, mjög fallegt og svona sumarfrísfílingur :) Fólk í sólbaði, að grilla, sigla, á bretti eða leika sér í fjörunni. Við fórum líka í Otway national park sem er gullfallegur skógur þar sem gróðurinn er sums staðar svo þéttur að maður sá varla til himins. Grænn gróður, ferskt loft, dýrahljóð... :) need I say more?
Kvöldið fór svo bara í chill og hvíld fyrir flug til Brisbane í gær. Að troða í töskuna og sonna. Ótrúlegt hvað fylgir manni af drasli! Ég eyddi nóttinni í Brisbane og hélt svo hingað til Airlie Beach. Já, það er strandastaður en hér er hálfskýjað og ringt mikið undanfarna daga. Planið er svo að fara í smá siglingu út í eina eyju hér. Eyjarnar eru velþekktar, kallast Whitsundays, og eru tótallí gordjöss :) Ég vona bara að veðurspáin rætist ekki og það verði smá sól og þurrt.
Verð bara hér í tvo daga og svo nokkra daga í Sydney áður en ég held til Nýja Sjálands. Tíminn flýgur...
En í dag er Australian Day, sem mér skilst að snúist bara um að ástralir séu að fagna sjálfum sér :) hér eru flestar búðir lokaðar, margir klæddir förum merktum Ástralíu eða með fánanum á og ég hef líka séð nokkra klædda fánanum sem skikkju :) svo eru víst partí alls staðar í kvöld. Happy Australian Day! :)
Skrifað af Ingibjörgu
23.01.2012 09:17
The Penguin Parade
Átti ÆÐISLEGAN dag í gær! Ég fór í dagsferð og við fórum í ekki dýragarð heldur ,,sanctuary" fyrir dýr eins og emua, wallabies (sem eru eiginlega litlar kengúrur), dingos, og kengúrur. Svo fórum við á verndarsvæði og fræðslustöð fyrir kóalabirni og ohh hvað þeir eru sætir :) Við kíktum líka við í súkkulaðiverksmiðju og á lítilli strönd. Allt var þetta á eyju hér rétt hjá Melbourne sem heitir Phillip Island. Við fórum líka á næstu eyju við hliðina á og fórum á gam alt bóndabýli sem hefur verið haldið eins og það var 1850-1860. Þetta er svona til að sýna fólki hvernig hlutirnir gengu fyrir sig í sveitinni í gamla daga. Það var sýnt hvernig smalahundar vinna, hvernig á að nota svipu og búmerang já og hvernig á að rýja kindur! Það fannst fólki alveg stórmerkilegt og vakti mikla lukku. Ég var ekki svo spennt enda séð þetta ,,nokkrum sinnum" áður ;) En þetta gæti verið góð hugmynd fyrir ættingja mína í sveitunum heima ef þeir vilja fara út í ferðamannaiðnaðinn? ;)
Rúsínan í pylsuendanum og aðalástæða ferðarinnar var svo að sjá ,,the penguin parade" eða þegar minnstu mörgæsir í heiminum koma heim í land seinnipartinn, labba upp ströndina og fara í holurnar sínar. Fyrst fórum við í fræðslumiðstöð og lærðum um þessar merkilegu verur, en þar eru svona göngubrýr við sjóinn og gullfalleg náttúra og útsýni. Þar var líka hægt að sjá nokkrar mörgæsir í felum í holunum sínum, þær sem höfðu ekki farið að veiða þennan dag. Rétt fyrir sólsetur raðar fólk sér á afmörkuð svæði á ströndinni sest í sandinn og fylgist með mörgæsunum koma í land í litlum hópum. Það koma kringum 1000 mörgæsir og þær eru svo mikil krútt. Þær fara varlega upp ströndina í litlum hópum og ef ein hræðist og snýr við gera hinar það sama, fara aftur út í sjóinn og byrja upp á nýtt :) Það má ekki taka myndir þarna enda skiljanlegt og bara næs að njóta augnabliksins, sitjandi á ströndinni við sólsetur og fylgjast með mörgæsunum í gullfallegu umhverfi, og vera ekkert að hugsa um að taka myndir :) Það er bara ekki hægt að lýsa svona upplifun. Algjörlega eitt það merkilegasta sem ég hef gert :)
Í dag rölit ég svo um Melbourne, sem er æðisleg borg, svona blanda af gömlum og nýjum byggingum, höfn, markaðir, og bara allt til alls. Hér er líka frí rúta fyrir túrista sem fer hring um miðbæinn þannig að maður getur séð allt það merkilegasta á einfaldan og aðgengilegan hátt :)
Á morgun er það svo ferð upp the great ocean road, sem strandlengja hér frá Melbourne með fallegum klettum og geggjuðu útsýni. Hinn daginn er það svo flug til Brisbane. Svona þegar maður er að ná áttum hér heldur maður á nýjan stað... Bestu kveðjur á klakann héðan frá Ástralíu :)
Skrifað af Ingibjörgu
21.01.2012 14:10
Uluru og Kata Tjuta
Átti alveg einstaklega yndislegan, eftirminnilegan en einnig erfiðan dag í gær. Fór í dagsferð með hóp í Uluru - Kata Tjuta National Park, sem eru semsagt stórir rauðir steinar í eyðimörkinni. Við lögðum af stað kl 6 en það tekur alveg 4 klst að fara þetta með rútu. Það var yfir 40 stiga hiti en samt frekar kaldur dagur, miðað við þennan árstíma, var okkur sagt :/ Við byrjuðum á að skoða og labba að Kata Tjuta, svo fórum í menningarmiðstöðin og lærðum um frumbyggjana og þeirra kenningar um þessa steina og svo var það Uluru. Á meðan reyndu flugur að borða okkur og við vorum að drepast úr hita, en það var þess virði. Leiðsögumennirnir fræddu okkur um þennan mikilfenglega stein en þeir voru frekar léttir á því og reyttu af sér brandarana og fífluðust. Svo komum við okkur fyrir, með gott útsýni, leiðsögumennirnir grilluðu, og svo borðuðum við og skáluðum með kampavíni á meðan sólin settist og maður sá rauða litinn breytast með. Þvílík upplifun, orð geta bara ekki lýst þessu.
Í hóp var fólk á öllum aldri frá Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Ástralíu, Singapore og Írlandi. Já, og svo afi! Tvífarinn hans afa er fundinn en hann var hermaður og vann sem slíkur víða um heim. Hann var á ferðalagi með konunni sinni sem var ekkert lík ömmu í útliti en svona hlý, glaðleg og hress kona :) Bara næstum því eins og að hafa með sér fólk á ferðalagi, svona til tilbreytingar ;)
En við komum ekki tilbaka fyrr en kl 1 og ég hef ekki tölu á því hvað ég drakk mikið af vatni þennan dag. Er enn þyrst.
Í dag hélt ég svo til Melbourne og verð hér í 4 daga. Var bara að koma hingað en líst vel á borgina. Hér er "bara" svona 25 stiga hiti og því betra :) Er á farfuglaheimili og laugardagskvöld þannig að það er hálfgert partí frammi. Kjörið tækifæri að skella í eina þvottavél ;)
Cheers :)
Skrifað af Ingibjörgu
19.01.2012 10:09
Komin!
Þá er ég komin hinum megin á hnöttinn eftir langt ferðalag. Ég flaug suður á laugardeginum, til London á sunnudagsmorgninum, eyddi deginum í London og flaug svo til Kuala Lumpur um kvöldið. Flugið til KL tók 13 klst og tók líka á taugarnar :/ Full vél, grátandi börn, óþægileg sæti... Enda svaf ég mikið í KL, rétt tók smá rölt en ekki eina einustu mynd. Leigubílstjórinn minn frá flugvellinum spilaði roxette, var mjög snyrtilegur og kurteis. Hann hafði gps guidinn á en ignoraði mest sem hann sagði. Kallinn sem vann á hótelinu vildi koma við hárið á mér. Hann sá svipinn á mér þegar hann spurði, og sagði svo: ,,Maybe later".
Eftir 2 nætur í KL var það svo 1 1/2 klst flug til Singapore, svo rúmlega 5 klst flug til Perth, í Ástralíu. Á leiðinni kynntist ég konu frá Perth, sem bauð mér far frá og til flugvallarins og gistingu :) sem ég þáði með þökkum og svaf á sófanum hennar.
Það fyndna er að ég spjallaði við 3 manneskjur á leiðinni og 2 af þeim eru prestar! Er verið að reyna senda mér skilaboð eða??? Konan í Perth er prestur, ég sat við hliðina á prest frá Nýja Sjáland í einu fluginu sem var að koma úr trúboði í Gambíu. Svo var það líka ástralskur námuverkamaður sem býr í Tæland en við rædrum ekki trúmál ;) hehe... Fékk fullt af ráðleggingum varðandi ferðalagið og svo drepur tímann að spjalla við einhvern :)
Í dag flaug ég svo frá Perth til Alice Springs, sem er tæplega 3 klst flug, en þetta er í miðri Ástralíu, í eyðimörkinni, og hér var 40 stiga hiti og sól í dag! Já, ég vildi sól og sumaryl. Be careful what you wish for! Á morgun fer ég svo í dagsferð til Uluru, eða Ayers rock, sem er eiginlega stór steinn í eyðimörkinni. Hljómar vel en googlið þetta áður en þið dæmið. Ég hlakka mikið til og er að smella í túristagírinn :)
Ég held svo til Melbourne hinn daginn. Meira þaðan :)
Cheers ;)
Skrifað af Ingibjörgu
12.01.2012 18:14
Going down under
Loksins, loksins, loksins! Þá er komið að því að halda aftur á vit ævintýranna :) ... þótt fyrr hefði verið! En eirðarleysið og útþráin er í hámarki og hafa þjakað sálartetrið síðan... hmm.. bara síðan ég man. Það líður einhvern veginn alltaf alltof langur tími á milli ferðalaga. Það má kannski þakka kreppu, bankahruni og öðru sem ég ætla ekki að fara út í hér enda mjög svo niðurdrepandi.
Ákvörðunin var ekki beint auðveld þar sem sífellt fleiri áfangastaðir bætast á listann en lítið bætist í peningaveskið þessa dagana :( Eftir miklar pælingar og að hafa skipt um skoðun miklu oftar en ég get talið, þá ákvað ég að skella mér á alveg nýjar slóðir, í nýrri heimsálfu, hinum megin á hnettinum. Sem mér finnst alveg kjörið svona í svartasta skammdeginu, og að mínu mati leiðinlegasta tíma ársins, að fara í sól og sumar :)
Það eru semsagt Nýja-Sjáland og Ástralía sem urðu fyrir valinu og ég verð í 6 vikur. Ég byrja á að "koma við" í Ástralíu, þar sem planið er að skoða alltof mikið á alltof litlum tíma! Svo eyði ég 3 vikum á Nýja-Sjálandi, en mig hefur lengi langað þangað og er það tilgangur ferðarinnar. Ég keypti mér 2 rútupassa um Nýja-Sjáland, með fyrirtæki sem kallast Kiwi Experience en með þeim ferðast maður með rútu, með öðrum ferðalöngum og bílstjóra/leiðsögumanni, og maður getur stoppað lengur þar sem maður vill og má taka alveg ár í að klára passann :) Þannig að hver veit nema ég bara komi ekkert heim fyrr en eftir ár! Hehe..
Á leiðinni út og heim stoppa ég í London, Singapore og Kuala Lumpur, svona svo maður þurfi ekki að vera alveg á ferðinni í meira en sólarhring í einu. Svo er líka bara gaman að stoppa við á fleiri stöðum sem maður hefur ekki farið á áður :)
Auðvitað ætla ég að reyna blogga og leyfa þeim sem hafa áhuga að fylgjast með :)
Brottför er 15. janúar og allt bara reddí.
Þangað til næst.. ;)
Ákvörðunin var ekki beint auðveld þar sem sífellt fleiri áfangastaðir bætast á listann en lítið bætist í peningaveskið þessa dagana :( Eftir miklar pælingar og að hafa skipt um skoðun miklu oftar en ég get talið, þá ákvað ég að skella mér á alveg nýjar slóðir, í nýrri heimsálfu, hinum megin á hnettinum. Sem mér finnst alveg kjörið svona í svartasta skammdeginu, og að mínu mati leiðinlegasta tíma ársins, að fara í sól og sumar :)
Það eru semsagt Nýja-Sjáland og Ástralía sem urðu fyrir valinu og ég verð í 6 vikur. Ég byrja á að "koma við" í Ástralíu, þar sem planið er að skoða alltof mikið á alltof litlum tíma! Svo eyði ég 3 vikum á Nýja-Sjálandi, en mig hefur lengi langað þangað og er það tilgangur ferðarinnar. Ég keypti mér 2 rútupassa um Nýja-Sjáland, með fyrirtæki sem kallast Kiwi Experience en með þeim ferðast maður með rútu, með öðrum ferðalöngum og bílstjóra/leiðsögumanni, og maður getur stoppað lengur þar sem maður vill og má taka alveg ár í að klára passann :) Þannig að hver veit nema ég bara komi ekkert heim fyrr en eftir ár! Hehe..
Á leiðinni út og heim stoppa ég í London, Singapore og Kuala Lumpur, svona svo maður þurfi ekki að vera alveg á ferðinni í meira en sólarhring í einu. Svo er líka bara gaman að stoppa við á fleiri stöðum sem maður hefur ekki farið á áður :)
Auðvitað ætla ég að reyna blogga og leyfa þeim sem hafa áhuga að fylgjast með :)
Brottför er 15. janúar og allt bara reddí.
Þangað til næst.. ;)
Skrifað af Ingibjörgu
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 14
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 53521
Samtals gestir: 23666
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 06:17:30
